- Advertisement -

Búa tossarnir út á landi?

Í frétt Moggans er skrifað um misvægi einkunna grunnskólabarna:

Inga Sæland menntamálaráðherra.

„Ósamræmi einkunnagjafar milli grunnskóla landsins er „greinilega mikið“ að sögn Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra. Ný gögn ráðuneytisins sýna að hlutfall nemenda sem fá A í lokaeinkunn úr grunnskóla nær frá 0% hjá mörgum skólum, sér í lagi á landsbyggðinni, upp í 56,7% hjá Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi.

„Það þarf enginn að halda að börn í einum skóla séu svo miklu færari en börn í öðrum skólum að þau séu að skora allt að 56% í einkunn upp á A á meðan aðrir skólar gefa ekki eitt einasta A,“ segir Inga í samtali við Morgunblaðið og svarar játandi þegar hún er spurð hvort þetta mismuni nemendum á landsbyggðinni við umsókn í framhaldsskóla.

Nemendur á Seltjarnarnesi fá hæstu einkunnirnar.

Enginn nemandi hefur útskrifast úr Dalvíkurskóla með A í stærðfræði eða íslensku í fjögur ár. Friðrik Arnarson skólastjóri segir að framúrskarandi sé að fá hæstu einkunn og það sé því vandasamt.

„Við höfum reynt að vera eins nákvæm og við getum að gefa rétta mynd af frammistöðu nemenda og það getur verið vandasamt að fá A en ég veit ekki hvernig aðrir skólar haga einkunnagjöf,“ segir Friðrik.

Alls eru 26 grunnskólar á landsbyggðinni sem gáfu ekki einum einasta nemanda A í lokaeinkunn í stærðfræði 2025 og 2026.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: