Alþingi:
Dagbjört Hákonardóttir Samfylkingu sagði þetta á Alþingi fyrir nokkrum andartökum:
„Um þessar mundir hefur skapast, vil ég segja, sorgleg umræða um hvort rétt sé að styðja Úkraínu með skilyrðislausum hætti eins og þau kalla eftir. Hér erum við vitaskuld að tala um ólögmætt innrásarstríð Rússa sem staðið hefur frá 2022 og stefnir í fimmta árið og veturinn er fram undan.
Auðvitað vill enginn verja fjármunum í stríðsrekstur. Auðvitað viljum við ekki frekar en nokkurt annað land í Evrópu, ekki frekar en Úkraína, biðja skattborgara um það að styðja við þessa varnarbaráttu sem Úkraína háir vegna ólögmæts innrásarstríðs Rússa. Auðvitað á stjórnarandstaðan að krefjast aðhalds og gagnsæis í fjárútlátum ríkissjóðs, skárra væri það nú, og það er svo sannarlega okkar skylda að standa fyrir skýrum svörum hvað það varðar. En að kalla eftir því að stuðningurinn sé skilyrtur við aðeins eitthvað eitt er ekki það sem Úkraína er að biðja okkur um. Það er ekki það sem Úkraína þarf.
Fjárframlög Íslands tryggja uppbyggingu á færanlegum sjúkrahúsum, byggingu á vararafstöðvum, sprengjueyðingu og já, við höfum líka gervilimi að bjóða þeim. En við þurfum að leggja í sameiginlega sjóði til að kaupa vopn til að standast árásir Rússa sem eru óforsvaranlegar og ólögmætar með öllu. Með öllu. Ég er stolt af því að styðja ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur sem styður Úkraínu í sinni varnarbaráttu skilyrðislaust. Ég er sérstaklega stolt af því að eiga hæstv. utanríkisráðherra Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur sem heldur merkjum Úkraína hátt á lofti, hvert sem hún fer. — Slava Ukraini.“