Það er vitað að tveir nýkjörnir bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins eru úr Elliðaarminum og óvíst með öllu hvort þeir muni styðja Írisi þegar kosið verður um bæjarstjóra í Eyjum. Ritstj.
Stjórnmál: Í Vestamannaeyjum er sérkennileg staða eftir kosningarnar á laugardaginn. Sjálfstæðisflokkurinn fékk 55% atkvæða og fimm menn kjörna sem verður meirihluti bæjarstjórnar. Fylgið er hins vegar langt frá því sem það var þegar Elliði Vignisson var í forystu Sjálfstæðismanna í Eyjum.
Framboð Sjálfstæðisflokksins að þessu sinni var erfitt í fæðingu því þar tókust á tveir armar. Annar þeirra er Írisararmurinn sem vill fá Írisi Róbertsdóttur sem bæjarstjóra. Hinn armurinn er Elliðaarmurinn sem getur ekki fyrirgefið „svik“ Írisar þegar hún stofnaði H-listann gegn Elliða og Sjálfstæðisflokknum og hafði sigur 2018.
Hún hefur nú setið sem bæjarstjóri í tvö kjörtímabil. Það er vitað að tveir nýkjörnir bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins eru úr Elliðaarminum og óvíst með öllu hvort þeir muni styðja Írisi þegar kosið verður um bæjarstjóra í Eyjum. Þessi afstaða Elliðaarmsins olli því að Írisararmurinn hringdi grimmt fyrir kosningar í sína stuðningsmenn og hvatti þá til að strika út Elliðaliðana tvo af D listanum. Þau tíðindi urðu ekki til að kæta Elliðaarminn og nú bíða Eyjaskeggjar í nokkurri eftirvæntingu eftir fyrsta fundi bæjarstjórnar þegar kosið verður um bæjarstóra.