
Jóhann Þorvarðarson skrifar:
„Stjórnsýslunefnd Alþingis hlýtur því að taka málið fyrir hið snarasta og óska eftir kostnaðarútreikningum og hlutlausu áhættumati á aðstæðum sem uppi voru þegar ákveðið var að senda vopnaða menn um borð.“
„Dómsmálaráðherra gengur illa um almannafé og misnotar öryggisreglur á sjó. Sjóræningjaleikurinn gagnvart Bandero kostar fúlgur fjár, hundruð milljóna króna þegar upp verður staðið. Stór hluti Landhelgisgæslunnar er upptekinn vikum saman í eltingaleik við ryðgaða jullu sem ekkert drífur. Fékk vart haffærni skírteini við síðustu skoðun.
Allt er þetta vegna þjónkunar Þorbjargar dómsmálaráðherra við Kristján Loftsson hvaladrápara. Sá álítur hvalveiðar vera guðsgjöf og framlengingu á eigin garpskap. Þetta sama lubbamenni kærði íslensku þjóðina fyrir að hafa ekki fengið að drepa hvali hér um árið og sagði nýverið alla sem ætla að segja já í kosningunum í ágúst vera vitlausa.
Undirgefni ráðherrans kallar á undanbragðalausa rannsókn því framkomnar útskýringar á hernámi Bandero eru ekki annað en yfirvarp. Stjórnsýslunefnd Alþingis hlýtur því að taka málið fyrir hið snarasta og óska eftir kostnaðarútreikningum og hlutlausu áhættumati á aðstæðum sem uppi voru þegar ákveðið var að senda vopnaða menn um borð. Hér má ekki undanskilja samskipti ráðherrans, Landhelgisgæslunnar og lögreglunnar við Kristján Loftsson og aðra fulltrúa Hvals hf.
Það er því ekki hlutverk Landhelgisgæslunnar að iðka einkaforvarnir fyrir Kristján Loftsson.
Réttlæting á yfirtöku Bandero er hreinn skrípaleikur. Hvalafriðunarfólkið um borð í jullunni á að hafa reynt að henda netadræsum og brjóstahöldum fyrir Hval 9 til að hefta för þess. Meiriháttar meint ógn átti að vera á ferðinni. Því þótti nauðsynlegt að grípa inn í með valdníðslu og ærnum tilkostnaði. Í öllu bramboltinu hefur síðan gleymst að hvalveiðar þetta sumarið hafa gengið hnökralaust fyrir sig þrátt fyrir viðveru jullunnar. Það gerir þennan sjóræningjaleik enn óskiljanlegri.
Öll farartæki á sjó eru útbúin löggiltum björgunarbátum. Til viðbótar þá eru hvalveiðiskip Hvals hf. með akkeri til að hindra skipsrek verði þau aflvana. Þannig að ef komið hefði til tjóns á Hval 9 þá eru björgunarbátar settir út ef það er talið nauðsynlegt. Svo er beðið eftir að björgunarsveitir, önnur skip og Landhelgisgæslan koma á vettvang til að draga aflvana skip í land og færa áhöfn á öruggari stað. Það er því ekki hlutverk Landhelgisgæslunnar að iðka einkaforvarnir fyrir Kristján Loftsson. Þýlyndi gagnvart honum hlýtur að vera einhverskonar Íslandsmet ef einkavinavæðing Sjálfstæðisflokks og Framsóknar á Landsbanka og Búnaðarbanka í upphafi aldar er undanskilin.
Eðlilegt hefði verið að láta reyna á samskipti Hvals 9 og Bandero og alveg sérstaklega í ljósi þess að hvalavinirnir voru búnir að lýsa því yfir að aðgerðir þeirra myndu ekki leiða til manntjóns. Og ef komið hefði til vandræða þá hefði það átt að fara í hefðbundinn farveg eins og önnur einkamál.
Í öllu þessu vaggandi umróti þá vaknar stór spurning um hvað hefði gerst ef raunverulegt sjóslys hefði nú orðið á sama tíma og tindátaleikurinn fór fram. Hefði Landhelgisgæslan þá ekki komist á vettvang innan ásættanlegs viðbragðstíma? Ráðherra getur bara ekki valsað svona um ríkissjóð og notað öryggisstarfsmenn ríkisins sem leikmuni í eigin dúkkuhúsi. Hún hlýtur að víkja úr embætti á meðan vönduð rannsókn fer fram. Annað gefur röng skilaboð.“