Þórður Magg skrifaði:
„Það var að koma út skýrsla um hver afdrif bænda „verða“ innan ESB. Ekki varð sú framtíðarsýn, sem blasti við þeim sjö bændum sem tóku að sér að greina þetta, björt né fögur. Ég vissi ekki að landbúnaðarskólinn væri svo flottur skóli að þetta lægi á sérsviði bænda, en ok.
En, niðurstaða Bændasamtaka Ísland var að þetta sé hræðileg hugmynd. Surprice, surprice. Ég ætla hins vegar alveg einn og óstuddur að birta Bændasamtökum Íslands mína niðurstöðu á því hvernig bændum mun reiða af utan ESB. Ég geri það á þann máta að ég ber saman stöðu landbúnaðar árið 1985, stöðuna nú og svo framreikna ég stöðuna eftir eina kynslóð, þ.e. eftir 25 ár.
Þá er ég bara að reikna með sömu þróun og var á Íslandi frá 1985 til 2025. 40 ár og framreikna þróun á sama hraða til 2050.
Sem sagt, hér er engin skoðun, bara stærðfræði:
- Árið 1985 voru bændur 7,9% af þjóðinni
- Árið 2025 2%
- Árið 2050 verða þeir horfnir ef sama fækkun heldur áfram
- Meðal aldur bænda 1985 var um 45 ár
- Meðalaldur bænda 2025 var 66 ár
- Meðal aldur bænda verður 79,1 ár árið 2050 ef heldur sem horfir
Það rímar við fækkunina í stéttinni, en ekki margir enn vinnandi rétt tæplega áttræðir. Það stefnir því í opinbera útför síðasta bóndans á Íslandi.
- Árið 1985 voru 828.000 kindur (veturfóðrað) á Íslandi
- Árið 2025 voru 335.000
- Árið 2050 verða 26.800 kindur á Íslandi ef heldur sem horfir. En engin eftir til að sinna þeim svo sem, ef efri framreikningar reynast réttir.
Svona lítur framtíð bænda út ef fram heldur sem horfir í núverandi kerfi. Falleg framtíðarsýn?
Þá á eftir að taka með í reikninginn að þjóðin er að breytast.
1985 bjó 45% af þjóðinni á landsbyggðinni, 2025 bjó 36% þar. Árið 2050 verður það 30,3% ef heldur sem horfir. Ræturnar eru að slitna.
Íslenskur landbúnaður hefur algerlega staðnað.
1985 áttu langflestir ættir og rætur að rekja inn í íslenska bændasamfélagið. Nú búa 72% Íslendinga á SV horni landsins. Eru bændur vissir um að stuðningur við þá (sem nemur 25-30 milljörðum króna á ári) muni verða tryggður í framtíðinni? Það er (ef við förum millileiðina og miðum við 27,5 milljarða) heildarstuðningur per bónda kr 11.450.000 á ári, tæp milljón á mánuð. Þarna eru teknar tölur frá OECD og deilt í fjölda bænda (2.400) Bændur fá þetta ekki beint, en þetta er stuðningurinn sem greinin fær – deilt á hvern bónda.
Þess utan þá fer neysla ungs fólks á afurðum þeirra fer sí minnkandi. Svo eru menn alveg vissir um að þessi lang ríkis styrktasta atvinnu grein landsins muni alltaf geta gengið að ríkissjóði?
Skýrslan sjálf var ekki góð. Með mjög einhliða sjónarhorn. Menn geta lesið hana, en vart þess virði. En það er galið að taka stöðuna:
Hvað gerist ef við göngum inn í ESB og bera það ekki saman við hvað gerist ef við gerum það ekki.
Íslenskur landbúnaður hefur algerlega staðnað. Engin framþróun á því sem þeir eru að selja. Lambakjöt selt frosið, í skrokkum jafnvel, stundum í ruslapokum. Þú veist aldrei hvaðan það kemur. Getur því ekki valið þér hvorki bónda né landsvæði. Hrútakjöt ekki aðskilið frá þrátt fyrir að vera mun verra kjöt (að mínu mati). Sláturstöðvarnar gefa því orðið nær engan tíma til að hanga, allt fryst strax. Slíkt er vond meðferð á kjöti. Flestir Íslendinga láta þá „hanga“ heima hjá sér með því að geyma það í nokkra daga á borði til að það brotni niður. Þetta á að vera gert við slátrun.
Og nú er ríkisstyrkti landbúnaðurinn að eyða stórfé í að reyna að koma í veg fyrir að við hin fáum að sjá hvað gæti hugsanlega orðið í boði. Það finnst mér ekki greindarleg nálgun hjá þessum samtökum, sem lifa nær eingöngu á skattfé, mínu og þínu.
Og ungir bændur, þeir eiga betri tækifæri skilið. Amk að fá að sjá hvað býðst. Ég reikna með að bændur séu varla ánægðir með að vera ein launalægsta starfs stétt landsins.
En, jú, svo virðist vera. Merkilegt.“