- Advertisement -

Drumbaskógur meðalmennskunnar

Eigum við nú að horfa aðgerðalaus á skipulögð og markviss mæðra- og barnamorð Ísraela?

Birgir Dýrfjörð skrifaði:

Fram hafa komið tilmæli um að Ísland samþykki viðskiptabann við Ísrael og láti þannig í ljós andúð á hegðun Ísraelsmanna.  Aðrir benda á að viðskiptabann af hálfu Íslands sé léttvægt.

Sjálfur trúi ég að rödd Íslands geti haft áhrif á sjálfsvirðingu okkar og annarra þjóða.

Öll lýðræðisríkin þögðu.

Á aðalfundi fulltrúaráðs Samfylkingarinnar í Reykjavík kynnti ég því rökstudda tillögu um að Ísland sliti stjórnmálasambandi við Ísrael.

REYNSLAN

Ég sat þann fræga fund í þingflokki Alþýðuflokksins þegar Jón Baldvin sagði frá nætursímtali Landsbergis forseta Litáen. Það var neyðarkall um stuðning.

Allur heimurinn beið eftir að Rússar framkvæmdu þá ákvörðun sína að hreinsa þingið út. 

Öll lýðræðisríkin þögðu.

Jón Baldvin sagði þingflokknum að hann ætlaði að fara til Litáen. Flestum brá við og auðvitað  komu fram sömu ábendingar og nú heyrast, að rödd frá einu smáríki hefði lítið að segja.

Ég hvorki vil né má tíunda ummæli einstaklinga á lokuðum fundi en efnislega svaraði Jón Baldvin: “Þögn er sama og samþykki, við megum ekki þegja. Ég fer með fyrstu ferð.”

Takk Ísland
sem þorði.

Þá hafði sovéski herinn raðað skriðdrekum sínum og hersveitum kringum þinghúsið.  Þúsundir landsmanna umkringdu þá þinghúsið og gerðu varnarvegg úr sjálfu sér og Rússarnir hikuðu við fjöldamorðin. Þannig var staðan þegar Landsbergis hringdi og Jón Baldvin fór og tók sér stöðu meðal fólksins á torginu framan við við skriðdreka Rússanna.

Þegar Jón Baldvin stóð með fólkinu framan við rússnesku skriðdrekana þá skein stærð Íslands við öllum heiminum eins og glæstur kjörviður í drumbaskógi meðalmennskunnar.

Í dag er höggvið í stein við þinghúsið í Vilníus: “Takk Ísland sem þorði meðan aðrir þögðu.”

HVAÐ NÚ

Eigum við nú að horfa aðgerðalaus á skipulögð og markviss mæðra- og barnamorð Ísraela?

Er okkur ekki fært að sýna öðrum þann kærleika sem öllum auðnast við móðurbrjóstið?  


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: