- Advertisement -

Ef EES líður undir lok, þá tapa Íslendingar ótrúlega miklum réttindum

En þið sem eigið Ísland. Eitt-Tvö prósentin sem eigið: Flutningsleiðirnar. Lyfjaverslunina. Matvöruverslunina. Bankana. Stjórnið lífeyrissjóðunum. Eigið tryggingarfélögin. Leigufélögin. Eigið fákeppnina. Þið vitið hverjir þið eruð.

Þórður Magg skrifaði:

„Niðurstaðan liggur fyrir. Í lang mikilvægustu kosningu minnar ævi. Það varð Nei. Svo:

Úff. Svona fór um sjóferð þá. Nú liggur niðurstaðan fyrir. Ég mun því yfirgefa þennan vettvang (Facebook) til að bjarga geðheilbrigði mínu.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Það er ekki
þess virði.

Ástæðan er einföld. Ég mun ekki getað hlustað á fólk sem kvartar yfir háu verðlagi. Á fólk sem kvartar yfir fákeppni. Á fólk sem kvartar yfir háum vöxtum. Á ungt fólk sem getur ekki komist í húsnæði vegna vaxta og samkeppni við leigufélög. Á bændur sem kvarta yfir lélegri afkomu. Á verkalýðshreyfingu sem kvartar yfir brostnum forsendum samninga. Á fólk sem talar um ónýtt vegakerfi. Á fólk sem er komið á eftirlaun og skuldar enn í húsunum sínum. Á fólk sem býr á Spáni en hafnar ESB. Á grátkór þeirra sem uppgötva í hvaða stöðu Ísland er gagnvart EES samningnum þegar Noregur gengur inn í ESB. Á vælið í vinnumarkaðnum þegar Pólverjarnir byrja að týnast heim til sín…

Ef ég þarf að hlusta á slíkt á komandi misserum þá mun ég ekki geta verið kurteis. Mun ekki geta átt siðaða umræðu. Og það mun éta mig innan frá.

Það er ekki þess virði.

Ég mun því yfirgefa þennan vettvang, að minnsta kosti í einhver ár. Ég þakka öllum sem fylgdu mér. Sér í lagi þeim sem að voru málefnalegir.

Ég vona að ég hafi verið það einnig.

Mun sakna sumra, ekki allra.

Nú er mitt næsta verkefni að sækja um Pólskan ríkisborgararétt. Til að halda þeim réttindum sem ég hef í dag. Mun taka tíma, en mun takast. Ef EES líður undir lok, þá tapa Íslendingar ótrúlega miklum réttindum.

Þið sem
eigið Ísland.

En þið sem eigið Ísland. Eitt-Tvö prósentin sem eigið: Flutningsleiðirnar. Lyfjaverslunina. Matvöruverslunina. Bankana. Stjórnið lífeyrissjóðunum. Eigið tryggingarfélögin. Leigufélögin. Eigið fákeppnina. Þið vitið hverjir þið eruð.

Þið unnuð fullnaðar sigur.

Það er alveg hægt að óska ykkur til hamingju með það.

Það er þá gert hér með.

Hvað hinir unnu? Hef enga hugmynd.

En, takk fyrir mig og góða nótt. Þessi rödd er þögnuð. Í einhver ár að minnsta kosti.

PS: Ég mun fjarlægja Facebook úr öllum tölvum og símum. Það þýðir ekki að spyrja mig eða senda mér upplýsingar hér eftir á þessu miðli. En, það næst í mig í síma.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: