Mér finnst svo mikil skammsýni að vilja ekki taka þetta samtal við ESB.
Ég er búinn að reyna hvað ég get til að hafa tíma og rún til að skrifa um hvers vegna ég ætla að segja JÁ. Þá birtist þessi fína grein Benedikts Erlingssonar um allt sem ég hefði viljað segja og betur orðuð en ég hefði ráðið við:
„Ein af mínum ástæðum fyrir að segja Já er tilfinningaleg og kannski ekki málefnaleg. Mér finnst Nei-arar vera frekir Besserwisserar sem vilja ekki leyfa okkur að taka upplýsta ákvörðun þegar þar að kemur…af því að þeir þykjast vita betur. En ég veit að þessi rök eru kannski ekki málefnaleg.
Hinsvegar er ég svo heppinn að lífsförunautur minn Tinna Lind er alltaf málefnaleg og rökföst…það er hennar helsti galli og alveg óþolandi. Ég er svo sammála svari hennar við spurningunni hvers vegna við ættum að eyða tíma og peningum í aðildarviðræður og kíkja í pakkann. Hér kemur hennar svar:
„Það er áætlað að aðildarviðræður taki um tvö ár og kosti um 2 milljarða. Til samanburðar þá kostar þjóðkirkjan um 4,5 milljarða á ári. Það er u.þ.b helmingur þjóðarinnar sem vill gjarnan sjá samninginn. Af hverju ætlar hinn helmingurinn að standa í vegi fyrir því? Það er rétt rúmlega helmingur þjóðarinnar skráður í þjóðkirkjuna en samt erum við að halda henni úti með þessum kostnaði. Ekki að ég sé á móti kirkjunni, er bara að setja þetta í samhengi. Svo er það kostnaður við að vera í ESB miðað við kostnaðinn við að halda úti krónunni sem mætti skoða og virðist ekki vera krónunni í hag.
Mér finnst svo mikil skammsýni að vilja ekki taka þetta samtal við ESB. Ég held að þjóðin muni líka læra allskonar á leiðinni, þetta yrði djúp sjálfsskoðun og svo verður hægt að kjósa já eða nei þegar samningur liggur fyrir. Nú eða slíta viðræðum ef ekki verður hægt að semja um t.d. auðlindirnar.
En að segja nei er eins og að vilja ekki fá tilboð í þakviðgerðir á þaki sem lekur af því það tekur tíma og orku að safna tilboðum og maður sé viss um að þau verði öll of há án þess að vita það raunverulega. Og það gleymist allur tíminn og orkan sem fer í að reyna að halda húsinu þurru ár eftir ár.“
Sem sagt, ef NEI -ið sigrar fást engin svör. Þá er þetta eins og slönugspilið. Förum aftur á byrjarreit.
-sme