Stjórnmál

„Ég er auðvitað ekki búinn að lesa þessar 33 blaðsíður…“

By Miðjan

April 23, 2025

„Ég er auðvitað ekki búinn að lesa þessar 33 blaðsíður,“ sagði þingmaðurinn og fyrrum sýslumaður í Vestmannaeyjum, Karl Gauti Hjaltason, í umræðu um stjórnarfrumvarp um að fækka sýslumöönum í aðeins einn.

„Ég segi bara í lokin, af því að tíminn er að verða búinn: Níu sýslumenn á Íslandi, átta á landsbyggðinni og færri en það á landsbyggðinni í raun og veru vegna þess að þeir eru kannski ekki nema fimm úti á hinni dreifðu landsbyggð — er það ofrausn, frú forseti? Er það ofrausn? Oft er þessi maður kannski eina yfirvaldið á staðnum sem íbúarnir geta leitað til og fengið úrlausn sinna mála. Það eru ákveðin lífsgæði, frú forseti, að geta verið í beinum samskiptum við þann sem er að taka mikilvægar ákvarðanir í lífi hvers manns.“