Með mér á myndinni er Birgir en hann sótti mig úti á sjó. Hann er hluti mikilvægs teymis björgunarsveitanna sem eru til staðar fyrir okkur hin þegar við lendum í klandri.

Fréttir

Ég hefði aldrei getað synt þessa vegalengd

By Miðjan

April 22, 2026

Jón Pétur Zimzen skrifaði:

„Það er ljóst eftir samtöl við björgunarsveitina og aðra að þetta stóð tæpt í fyrrakvöld. Þrátt fyrir að vera nærri landi ca. 150 metra og að það væri logn og sléttur sjór þá er þessi staður úr alfaraleið. Ég hefði aldrei getað synt þessa vegalengd vegna þess að smekkbuxurnar heftu fætur mína algerlega.

Sonurinn hefði líklega getað það, það huggar.

En bara að vera þarna úti í 30-60 mín í viðbót hefði lækkað líkamshita enn meira og þá hefði líklega ekki þurft að spyrja að leikslokum. Þakka björgunarsveitunum, sjúkraflutningamönnum og bráðamóttökunni aftur fyrir fagleg vinnubrögð og ,,lífgjöfina”. Munum þó að lífið allt er ein áhætta, lærum og þroskumst af reynslunni.“

Kv. JPZ