Fréttir

Ég mun taka til varna með þjóðarhagsmuni að leiðarljósi

By Miðjan

March 30, 2026

Stefna: Guðrún Hafsteinsdóttir hefur meðtekið stefnu frá samtökunum Solaris:

Mér hefur borist stefna frá Solaris og lögmanni þeirra Helgu Völu Helgadóttur, fyrrverandi þingmanni Samfylkingarinnar, fyrir meiðyrði.

Samkvæmt stefnunni er þess krafist að þrjú ummæli mín í Spursmálum frá 28. nóvember 2025 verði dæmd dauð og ómerk, að ég greiði 4 milljónir króna í miskabætur og að ég birti opinbera afsökunarbeiðni.

Í stefnunni kemur fram að eftirfarandi ummæli verði dæmd dauð og ómerk:

Það er greinilegt að samtökin Solaris vilja með stefnunni fá dómstóla til að hefta tjáningarfrelsi mitt sem varið er af stjórnarskrá Íslands og mannréttindasáttmála Evrópu.

Þessi málatilbúnaður sýnir fyrst og fremst að þörfin fyrir opna umræðu um þennan málaflokk er meiri en nokkru sinni. Slík umræða verður ekki þögguð niður með lögsóknum.

Ég mun taka til varna með þjóðarhagsmuni að leiðarljósi.