Stjórnmál

„Ég tel réttlætanlegt að hreinlega skamma ráðherrann“

By Miðjan

September 16, 2025

„Í óundirbúnum fyrirspurnum í gær átti ég erindi við hæstvirtan innviðaráðherra. Ég innti hann eftir því af hverju hann væri ekki búinn að gefa út reglugerð um það hvernig ætti að ráðstafa svokölluðum byggðakvóta. Það var fátt um svör hjá ráðherranum, svo ég segi það nú bara hreint. Það var meira að segja þannig að hann benti mér á að það væri ekki skylda að gefa reglugerðina út áður en fiskveiðiárið væri hafið en nýtt fiskveiðiár hófst 1. september eins og við öll vitum,“ sagði Ólafur Adolfsson þingflokksformaður Sjálfsstæðisflokksins á Alþingi í dag.

„Ég velti því fyrir mér hvort hæstvirtur innviðaráðherra hafi engar áhyggjur af því að fyrirtæki sem eru í útgerð og vinnslu hafi lítinn eða engan fyrirsjáanleika um ákvarðanir ríkisvaldsins. Ég gat ekki heyrt að ráðherrann hefði miklar áhyggjur af því. Ráðherrann hefur sagt að hann sé að skoða þessa hluti og ætli að taka ákvörðun byggða á þeirri skoðun. Er nú ekki réttlætanlegt að þessari ákvörðun verði hraðað eins og nokkur kostur er, það verði búið þannig um hnútana að óvissu verði eytt um þetta mál?

Formaður flokks innviðaráðherra hefur reyndar lýst því yfir að hún ætli að nota meira og minna allar heimildir úr þessum potti í strandveiðar þó að innviðaráðherra hafi ekki tekið undir það. En það væri auðvitað athyglisvert ef það yrði niðurstaðan því að þar er verið að vega, vil ég leyfa mér að segja, að störfum sem eru heilsársstörf í þessum byggðarlögum sem eiga undir varðandi þennan kvóta. Ég tel réttlætanlegt að hreinlega skamma ráðherrann fyrir það að hafa ekki gefið út þessa reglugerð og leitt þessa óvissu í jörð,“ sagði Ólafur Adolfsson á Alþingi fyrr í dag.