Sólveig Anna Jónsdóttir skrifaði:
…viljann til að
gefast ekki upp…
„Dagurinn er runninn upp, fallegur og skýr. Á eftir fer ég á kjörstað ásamt fjölskyldunni minni og segi Nei af öllu hjarta. Ég segi Nei við því að færa völd og áhrif fjær okkur, til fólks sem mun aldrei bera hag okkar fyrir brjósti, ég segi Nei við því að grafa undan möguleikum vinnandi fólks á því að berjast markvisst fyrir efnahagslegu réttlæti og ég segi Nei við því að gefast upp frammi fyrir vandamálum og halda að aðrir ætli að leysa þau fyrir mann. Ég trúi á lýðræði, ég trúi á samstöðu verkafólks og ég trúi á þær systur seiglu og þrautseigju; getuna til að rísa upp þrátt fyrir erfiðleika, viljann til að gefast ekki upp og halda áfram alla leið.
Baráttan sem er að baki hefur verið skrýtin; stundum skemmtileg, stundum alls ekki. En sú barátta sem er einhvers virði verður alltaf erfið – við verðum sjálf að finna leiðir til að gera hana skemmtilega, þess virði að standa í henni. Og þrátt fyrir að allskonar ótrúleg orð hafi verið látin falla, hefur mér eiginlega allan tímann þótt gaman. Það hefur verið gaman að hitta og tala við allskonar fólk, segja frá og hlusta á aðra, deila reynslu og meðtaka reynslu annarra. Það er gott að búa við mál og tjáningarfrelsi og ég óska engum þeirra leiðu örlaga að njóta ekki þeirra grundvallarréttinda – í samfélagi málfrelsis verðum við einfaldlega að þola hitt og þetta; ef okkur mislíkar það sem sagt er höfum við öll réttinn til að málflytja, rökræða, rífast og útskýra – og halda fast í skoðanir okkar ef við svo kjósum.
Á árunum eftir
hrun sagðist ég…
Á árunum eftir hrun sagðist ég stundum ætla að stofna Nei-flokkinn – mér fannst slagorðið sem ég bjó til rosa fyndið: Segjum já við nei! Þá var ég jákvæður nei-sinni og ég er það enn. Ég ætla ekki að segja Nei vegna þess að ég sé hrædd eða þröngsýn – ég ætla að segja Nei vegna þess að ég trúi því að við getum tekist á við þau vandamál sem við stöndum frammi fyrir hér á þessu landi, landinu okkar, fundið á þeim lausnir og notað allt það mikla ríkidæmi sem við eigum til að útbúa gott og réttlátt samfélag þar sem að allt fólk fær að blómstra, allir geta notið þess að vera hluti af heildinni, og við öll fáum að leggja til eftir getu og uppskera eftir þörfum.
Ég vona að fleiri en færri segi Nei í dag – við verðum öll að mæta á kjörstað. Við erum ólík og allskonar, við erum ósammála um fjölmarga hluti og það er bara allt í lagi. Þannig er að búa í samfélagi með öðru fólki – það er ein af staðreyndum mannlegrar tilveru. Það eigum við að hafa lært sem börn, það eigum við að skilja sem fullorðið fólk, og það eigum við að kenna okkar eigin börnum. Ég held að þrátt fyrir að við séum ósammála um ýmislegt séum við langflest sammála um þetta – sem betur fer.
Ég vaknaði eldsnemma. Ég er búin að þvo þvott, hengja út í góða veðrið, drekka allt of mikið kaffi. Það verður erfitt að bíða í allan dag eftir niðurstöðum. En það er líka partur af því að vera manneskja; við verðum spennt og óþreyjufull og við þurfum að læra að þolinmæði – við munum eftir því að bíða á aðfangadag sem börn eftir því að klukkan yrði sex, að sest væri til borðs, að fullorðna fólkið hætti að tala og borða, svo að við gætum loksins opnað gjafirnar undir trénu. Pakkana undir trénu; ég vona af öllu hjarta að pakkinn sem við opnum í kvöld verði pakki sjálfsákvörðunarréttar og lýðræðis, ekki mjúki pakkinn sem við báðum aldrei um.
Sjáumst í kvöld á kosningavökunni – áfram Nei – Áfram Ísland!“
Greinina birti Sólveig Anna á Facebook. Val fyrirsagnar er Miðjunnar.