Greinar

Ég var óviðbúinn þeirri óhugnanlegu staðreynd að reynt yrði að niðurlægja dómgreind landsmanna

By Miðjan

May 25, 2026

Umræðan: Þröstur Ólafsson hagfræðingur skrifaði:

„Alveg var ég óviðbúinn þeirri óhugnanlegu staðreynd að reynt yrði að niðurlægja dómgreind landsmanna með því að fá stóran hlut þeirra til að trúa því að viðræður um aðild jafngilti samningsniðurstöðu, að verið væri að greiða atkvæði um fullgildan samning. En það virðist vera að raungerast. En það er svo sem ekkert nýtt að ofursterk hagsmunasamtök og pólitískir vegleysu menn, taki höndum saman við að rugla dómgreind þjóða. Við þurfum ekki að líta lengra en til vesturs. Niðurstöðuna sjáum við. Á helmingi liðinnar aldar var þetta frekar regla en tilfallandi. Ekki hef ég ráð undir rifi hvernig koma á landslýð til að sjá mun á viðræðum um samning og fullgerðum samningi. Ef viðræður leiða til samnings sem við teljum óaðgengilegan, þá fellum við hann í lofaðri og skyldugri þjóðaratkvæðagreiðslu. Svo einfalt er málið.“

Haraldur Ólafsson veðurfræðingur er einn allra harðasti andstæðingur aðildarviðræðna skrifaði:

„Enginn sækir um inngöngu í félag nema hann vilji ganga inn. Allra síst ef tilkostnaðurinn er gríðarlegur.“

Helga Vala Helgadóttir lögmaður svaraði Haraldi:

„enginn sækir um nema vilja fara inn” – enginn fer inn nema með samningi sem þjónar hagsmunum umsækjenda. Þetta er eins og hverjar aðrar samningsviðræður – sæktu um vinnu, gerðu tilboð í fasteign, gerðu samning um samstarf á hvaða sviði sem er, sæktu um skólavist. Ef samningur – að loknum samningaviðræðum – er ekki í þágu þinna hagsmuna, eða að einhverju leyti óásættanlegur, þá einfaldlega skrifarðu ekki undir samninginn. Þannig er það hjá báðum samningsaðilum, alltaf. Það gerðu Norðmenn td í tvígang!

Að halda öðru fram er vísvitandi blekking og það er óheiðarlegt að keyra baráttu á blekkingum.“

Umræðan um ESB á eftir að fá á sig mikla furðu einkum frá þeim sem vilja umfram allt koma í veg fyrir að að samningaviðræðum verði.