Alþingi: Lilja Rafney Magnúsdóttir, formaður atvinnuveganefndar, kom í ræðustól þegar stjórn fiskveiða var rædd á Alþingi:
Það hefur gert stjórnvöldum erfitt fyrir að endurskoða kerfið sökum þess hve geirneglt það er orðið með veðsetningu og eignarréttarlegri kröfu handhafa og miklum fjárfestingum þeirra í óskyldum rekstri. Sjávarútvegurinn er undanskilinn samkeppnislögum, sem mér finnst að ætti að endurskoða, og mikilvægt er að það ríki gagnsæi, að staða ólíkra aðila í veiðum og vinnslu njóti jafnræðis og að öll virðiskeðjan sé uppi á borðinu svo rétt verð skili sér til sjómanna og samfélagsins. En sú hefur ekki verið raunin í mörgum tilvikum í innri viðskiptum tengdra aðila í veiðum og vinnslu.
Ég hef verið mjög hlynnt því að ákveðið hlutfall af sjávarafla fari á fiskmarkað svo tryggja megi betur eðlilega verðmyndun. Það myndi hafa áhrif á leiguverð til lækkunar og jafnræði fiskkaupenda að hráefni. Þá má nefna hluti sem hafa um árabil verið til skoðunar en lítið gerst í, eins og endurvigtun, ísprósentuna og ónýttar aflaheimildir í tilteknum tegundum sem mikilvægt er að stjórnvöld beiti sér fyrir að tekið verði á strax, sem skilar sér með auknum verðmætum og réttlátara kerfi.
Umhverfisvænar veiðar skipta okkur öll miklu máli til að ná sem mestum afrakstri af sjávarauðlindinni og þau alvarlegu áhrif sem þung, botndræg veiðarfæri hafa á lífríki sjávar þarf að taka alvarlega, eins og David Attenborough hefur bent á. Stjórnvöld eiga að beita sér fyrir því að notkun umhverfisvænna veiðarfæra njóti ávinnings í veiðum og að tekið verði hart á brottkasti og illri umgengni í lífríki sjávar og braski og ógagnsæi í verðmyndun í sameiginlegri auðlind þjóðarinnar.“