Fréttir

„Eigum að virða verkfallsréttinn“

By Miðjan

May 21, 2014

Kjaramál „Að sjálfsögðu eigum við að virða verkfallsrétt. Þetta hefur ekkert með það að gera en verkfallsvopninu er misbeitt, og þá á ég við bitið í því, eftir því hvaða starfsstéttir eiga í hlut. Það er bara svoleiðis. Ákveðnar starfsstéttir leggja niður störf og þá hefur það mismunandi áhrif á mismunandi þætti samfélagsins. Það hefur gríðarlega víðtæk áhrif ef flugfólk okkar, það fólk sem gegnir þessum gríðarlega mikilvægu störfum í tengingu samgangna við landið, við erum eyland og aðstæður okkar eru sérstakar að þessu leyti.“

Nú þegar flugfreyjur stöðva vinnu í sinni kjarabaráttu vofur í þeim þetta sem er hér að ofan, en þetta er bein tilvitnun í Jón Gunnarsson, þingmann Sjálfstðæðisflokksins og formann atvinnuveganefndar þingsins, en þessi orð lét hann falla þegar lög voru sett á aðgerðir flugstjóra.

Og hann hélt áfram og sagði: „Hvort þetta eru fimm þúsund manns eða 100 þúsund manns, það getur líka verið mismikil sem áhrifin eru á fólk og samfélög. Verkfallið í Vestmannaeyjum hafði mjög alvarlega afleiðingar fyrir það samfélag. Auðvitað verðum við að horfa á dæmin í hvert sinn.“