Björn Leví Gunnarsson:
Fólk segir heimskulega hluti stundum. Eins og þetta.
Ef þessi „rök“ eiga að ganga upp þá verða þau að virka fyrir allt annað. Fálkar eru auðlind – og voru handsamaðir lengi vel. Af hverju á ekki að nýta þá auðlind aftur?
Ég vona að svarið sé augljóst öllum.
Ath. að ég er ekki að bera saman líffræðilega stöðu hvala og fálka. Þessi rökleysa snýst ekki um þann samanburð. Þetta snýst um þá framsetningu að það sé eitthvað eðlilegt að nýta auðlind, bara af því að hún er þarna.
Sú skoðun, og þessi rök, hafa verið sérstaklega skaðleg í gegnum mannkynssöguna. Það þarf bæði að vera ástæða fyrir því að nýta einhverja auðlind OG ígrunduð athugun á afleiðingum þess að nýta auðlind. Það þarf að vera svar við „til hvers?“ – og í tilfelli hvalveiða þá er nákvæmlega engin tilgangur lengur. Allt sem fæst úr hvalveiðum er hægt að fá annarsstaðar og öðruvísi.