RÚV: Snjóflóð féll á Ólafsfirði fyrir skemmstu. Samkvæmt lögreglunni á Norðurlandi eystra er eins leitað. Þetta staðfestir Andri Freyr Sveinsson varðstjóri. Allar björgunarsveitir á Eyjafjarðasvæðinu hafa verið boðaðar út í hæsta forgangi.
Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið send á staðinn að beiðni lögreglunnar.
Uppfært:
Sá sem leitað var að er kominn fram. Hann sakaði ekki í snjóflóðinu.