
Jóhann Þorvarðarson skrifar:
„Og hafið í huga að samningar við ótrygg lönd eins og Kína, Indland eða Rússland koma ekki í staðinn fyrir afburðar aðgengi að Evrópu, verðmætasta markað veraldar.“
„Ég segi hiklaust já því Ísland þarf að þróast fram á við. Í því sambandi verða kjósendur að hafa í huga að EES samningurinn er uppsegjanlegur með aðeins 12 mánaða fyrirvara samkvæmt 127. gr. samningsins. Ákvæðið er þarna af gildri ástæðu og yrði það virkjað hefði það skelfilegar afleiðingar í för með sér fyrir Ísland. Atvinnuleysi myndi stökkbreytast. Það er því öryggismál í víðum skilningi að ljúka aðildarviðræðum og sjá hvað út úr þeim kemur. Öðruvísi geta Íslendingar ekki lagt faglegt mat á framtíðartengsl landsins við umheiminn.
Ef ekki já núna þá gæti næsta góða tækifæri ekki sýnt sig í marga áratugi! Og hafið í huga að samningar við ótrygg lönd eins og Kína, Indland eða Rússland koma ekki í staðinn fyrir afburðar aðgengi að Evrópu, verðmætasta markað veraldar.“