Greinar

Ekki skortir Sjálfstæðismönnum skopskynið

By Miðjan

April 01, 2026

Stjórnmál: Sigurgeir Sigmundsson, Engeyingur og gítarleikari, skrifaði í dag, 1. apríl:

Heildareignir íslenskra heimila eru 25 þúsund milljarðar. Af þessari upphæð á eitt prósent þjóðarinnar (3.900 manns) 6 þúsund milljarða (1,5 milljarðar á mann). Tíu prósent þjóðarinnar á ca 15 þúsund milljarða eða 60 prósent af heildareigninni. Eignarhlutur þessa hóps í þjóðarkökunni hefur aukist á undanförnum árum þrátt fyrir valdatíð vinstri stjórnar Bjarn…… uh…. uh … Katrínar Jakobsdóttur.

Nú hefur fulltrúi tíu prósentanna farið fram á að 90 prósentin taki þátt í svokallaðri Þjóðarsátt sem felur í sér að 90 prósentin greiði til baka ofgreidd laun, afrakstur góðæris síðastliðinna ára en hins vegar eru engar hugmyndir enn á borðinu um aðkomu tíu prósentanna að þjóðarsáttinni.

Á sama tíma boðar Sjálfsstæðisflokkurinn stórfelldar skattalækkanir, fjármagnaðar með sölu á ríkiseignum, m.a. restinni af eignarhluta í ríkisbönkunum. Eitt er víst að það virðist ekki skorta skopskyn hjá Sjálfstæðismönnum þó kjósendum fækki.