- Advertisement -

Engin þurft að þola annan eins sora, viðbjóð og djöfulskap eins og Þorgerður

Það er mikið skrifað um Kastljósþáttinn frá því í gærkvöld. Þorgerður Katrín fær mikið hól fyrir frammistöðuna. Sjálfur ef ég ekki séð þáttinn. Einn þeirra sem hefur tjáð sig er Illugi Jökulsson. Hanns skrifaði þetta:

„Sumir segja að í báðum herbúðunum JÁ og NEI séu einstaklingar sem missa sig út í fúkyrðaflaum og persónulegar svívirðingar um mótstöðufólkið. Eflaust er nokkuð til í því. Hitt veit ég að enginn einstaklingur í þessari baráttu hefur þurft að þola annan eins sora, viðbjóð og botnlausan djöfulskap eins og Þorgerður Katrín. Þó ég hafi markvisst reynt að sneiða hjá verstu drullupyttunum í baráttunni hef ég samt séð fullyrðingar um hana sem engin manneskja á að þola – allra síst manneskja sem er bara að berjast fyrir því sem hún trúir í einlægni að sé sem flestum Íslendingum fyrir bestu. Ekki myndi ég afbera svona andstyggð, það get ég svarið. En einmitt þegar mest lætur kemur hún í sjónvarpið og er bæði sjálfri sér og málstaðnum til sóma. Það sem ég veit að pabbi hennar hefði orðið stoltur af stelpunni í Kastljósi í kvöld, og mamma hennar líka þó hún hefði sjálfsagt látið minna á því bera.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: