Fréttir

Enginn með breyttum búvörulögum

By Miðjan

December 05, 2019

Alþingismenn voru nú rétt í þessu að fá þessa merkilegu yfirlýsingu senda til sín:

„Undirritaðir aðilar eru sammála um að það frumvarp sem nú liggur fyrir um breytingu á búvörulögum og tollalögum, 382. mál, eigi ekki að samþykkja í núverandi mynd. Nauðsynlegt er að vinna málið áfram og finna því heppilegri farveg, m.a. til að bregðast við mögulegum frávikum sem alltaf kunna að koma upp í búvöruframleiðslu, sem háð er veðurfari og öðrum ytri aðstæðum. Undirritaðir aðilar vilja gjarnan koma að þeirri vinnu.

5. desember 2019

Bændasamtök Íslands Félag atvinnurekenda Félag eggjabænda Félag kjúklingabænda Félag svínabænda Landssamband kúabænda Landssamband sauðfjárbænda Neytendasamtökin Samband garðyrkjubænda Samtök iðnaðarins Sölufélag garðyrkjumanna“

Ég efast um að þessi hópur hafi áður sameinað krafta sína gegn vondu þingmáli. Atvinnuveganefnd á engan annan kost en að hlusta á þennan hóp, fresta málinu og hvetja stjórnvöld til að taka upp samtal við þessa aðila.

Fengið af Facebooksíðu Gunnars Braga Sveinssonar.