Fréttir

Enn berjast Kínverjar við Davíð

By Ritstjórn

July 11, 2020

Enn og aftur sér starfsfólk kínverska sendiráðsins ástæðu til að svara Davíð Oddssyni, ritstjóra Moggans.

„Þann 6. júlí síðastliðinn birti Morg­un­blaðið ritstjórnargrein með titl­in­um „Eitt ríki, eitt vont kerfi“ þar sem komið var fram með órétt­mæt­ar ásak­an­ir og staðreynd­ir túlkaðar með hlut­dræg­um hætti, varðandi nýja lög­gjöf til varn­ar þjóðarör­yggi í Hong Kong. Auk þessa voru sett­ar fram órök­studd­ar at­huga­semd­ir varðandi mál­efni Hong Kong. Kína harm­ar sterk­lega þessi um­mæli og lýs­ir and­stöðu við þessa túlk­un,“ segir í upphafi langrar greinar sem Le Shuang skrifar fyrir hönd sendiráðsins.

„Hong Kong er hluti af Kína. Mál­efni Hong Kong eru inn­an­rík­is­mál í Kína. Þessi laga­setn­ing er til að styrkja lög­gjöf til vernd­ar þjóðarör­yggi í einu héraði Kína, og er í fullu sam­ræmi við vænt­ing­ar íbúa Hong Kong um friðsælt líf, en því hef­ur verið stefnt í hættu síðasta árið vegna óróa í þjóðfé­lag­inu. Ég von­ast til að stofn­skrá Sam­einuðu þjóðanna verði að fullu virt þar sem sú grund­vall­ar­regla er sett fram að virðing skuli ríkja gagn­vart full­veldi og að ekk­ert ríki hafi rétt til að hlutast til um inn­an­rík­is­mál annarra ríkja. Ég von­ast einnig til að mönn­um auðnist að líta á lög­gjöf­ina með yf­ir­veguðum og óhlut­dræg­um hætti og að það ná­ist að vinna að því lang­tíma­mark­miði að í Hong Kong ríki friður og vel­meg­un,“ segir svo í lok greinarinnar.