Alþingi: Ólafur Adolfsson, Sjálfstæðisflokki og fyrsti þingmaður Norðvesturkjördæmis, skrifaði:
Innviðaráðherra kemur með enn eina bombuna frá ríkisstjórninni og hyggst afnema rækju og skelbætur til að geta bætt við dögum í strandveiðum. Er mönnum ekkert heilagt í aðför að sjávarbyggðum?
Afnám skelbóta í Stykkishólmi mun bæta við hálfum degi á strandveiðum og setur fjölda heilsársstarfa í fullkomið uppnám.
Sem fyrsti þingmaður Norðvesturkjördæmis hef ég óskað eftir fundi með Innviðaráðherra ásamt þingmönnum kjördæmisins til að ræða þetta grafalvarlega mál og kalla eftir skýringum ráðherrans.