Stjórnmál

Er Framsókn ekki við bjargandi?

By Miðjan

March 02, 2026

Fjölmiðlar: Staksteinar Moggans agnúast út í Framsóknarflokkinn þennan morguninn. Maður líttu þér kunna sumir að segja. Sjálfstæðisflokkurinn er í miklu basli. Lesum Staksteinana:

„Það blæs ekki byrlega fyrir Framsókn miðað við skoðanakannanir. Fylgið hefur lítið þokast upp á við frá því í síðustu kosningum. Þá rétt náði framsóknin 5% sem þarf til að fá kosna þingmenn.

Nýr formaður hefur tekið við hjá Framsókn og hyggst koma flokknum á betri braut. Verðbólga og framsókn hafa yfirleitt farið saman. Er Framsókn var í ríkisstjórn á níunda áratug síðustu aldar fór verðbólgan yfir 100% á fyrri hluta þess áratugar. Þetta er einhver mesta verðbólga sem þjóðin hefur upplifað, sannkölluð óðaverðbólga.

Getur ekki verið að þjóðin sé orðin þreytt á Framsókn? Fylgi hennar í könnunum bendir eindregið til þess. Að lokum skal nýkjörnum formanni Framsóknar óskað góðs gengis í formannstíð sinni.“