Dóra Magnúsdóttir skrifaði:

„Þegar Halldór Benjamín Þorbergsson, forsprakki Áfram Ísland og forstjóri Heima, segir að Ísland sé í meistaradeild og Evrópusambandið í miðri annarri deild efnahagslega, þrátt fyrir að hagvöxtur á mann í Evrópusambandinu hafi verið meiri síðustu 10 ár en á Íslandi, þá velti ég því fyrir mér hvort hann sé bara að tala um sjálfan sig. Að Ísland sé í meistaradeildinni fyrir hann persónulega. Verandi með um 7 milljónir í laun á mánuði, rekandi fyrirtæki sem mun græða um 4.500 milljónir út af verðbólgunni í ár og hafandi verið í hávaxtarumhverfi með sterka krónu síðustu ár, hvort Ísland sé bara nákvæmlega rétt stillt af fyrir hann og hans vini.“