Greinar

Er Ísland metnaðarlausasta land veraldar?

By Miðjan

August 06, 2025

Atli Þór Fanndal skrifaði:

Mikið hljóta stjórnmálin að vera gasalega stolt af sér fyrir að vera svo taktísk að taka undir rugludallapólitík Sjálfstæðismanna (sem sumir vilja kalla sig Miðflokksmenn) um að hér flæði innflytjendur til Íslands eins og ekkert sé. Dómsmálaráðherra getur verið svakalega stolt af sér fyrir að taka undir þessa vitleysu. Djöfull getur verið þreytandi að vera frá einu ríkasta landi heims sem um leið er metnaðarlausasta land veraldar.