- Advertisement -

Er Kristrún með bundið fyrir bæði augu?

Sigurjón Magnús Egilsson ritstj. skrifar:

Gluggað í ræðu Kristrúnar Frostadóttir frá því í gærkvöld. Hún sagði meðal annars:

„Við höfum stöðvað stjórnlausar verðhækkanir á húsnæðismarkaði. Þannig stöndum við með fjölskyldum og ungu fólki sem vill gera drauminn um eigið húsnæði að veruleika á Íslandi. Þið munið hvernig verðið hækkaði og hækkaði árum saman langt umfram verðbólgu þannig að fyrstu kaupendum fækkaði og draumurinn um eigið húsnæði varð sífellt fjarlægari ár frá ári.“

Ja, hérna. Á ríkisstjórn Íslands heiður af kulnun á húsnæðismarkaði? Eflaust. Meira frá forsætisráðherra:

Treystir hvorki
honum né
ríkisstjórninni.

„Ekki misskilja mig. Þessi markaður er ennþá bilaður og við ætlum að gera ennþá betur. En hvaða árangur hefur þó náðst á tveimur árum?“

Verðhrun? Ja, hið minnsta umtalsverðar verðlækkanir. Hvar er unga fólkið? Hvers vegna kaupir það ekki þrátt fyrir að hér sé einhverskonar „kaupendamarkaður“. Kannski er fólkið hrætt við markaðinn. Treystir hvorki honum né ríkisstjórninni.

Ekki má gleyma stærstu hindruninni. Greiðslumatið síar margt ungt fólk frá því að geta keypt sér íbúðir. Kristrún virðist ótengd við alvöruna. Hún segir:

„Í stað verulegra hækkana umfram verðbólgu hefur húsnæðisverð farið lækkandi að raunvirði. Nú sjáum við hæsta hlutfall fyrstu kaupenda frá því fyrir efnahagshrunið árið 2008 enda gripum við til aðgerða og verkin tala.“ Mér þætti gaman að sjá það. Ef þetta er rétt er nokkuð víst að þar munar mestu um aðstoð frá fjölskyldum.

Svo er það rúsínan í pylsuendanum:

„Þrátt fyrir háa vexti og þrátt fyrir þráláta verðbólgu þá var greint frá því í fréttum fyrir helgi að vanskil heimila hafa aldrei verið minni svo langt sem gögnin ná.“

Skýringin er eflaust sú að nálarauga greiðslumatsins er það þröngt að þau fáu sem sleppa í gegn ná að standa í skilum. En hvar eru þau sem gera það ekki? Jú, þau leigja hjá okurleigusölum landsins. Og enga von um að sleppa þaðan. Staða þeirra virðist ekki hafa komist í höfuð eða hjarta fólksins sem mestu ræður um framgang samfélagsins.

Svo má ekki gleyma hvað er að gerast. Fjöldauppsagnir í byggingaiðnaði, óseldar íbúðir hrannast upp og víða blasa við gjaldþrot fyrirtækja á þeim markaði. Er það þá einnig í boði Kristrúnar Frostadóttur og ríkisstjórnar hennar?“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: