- Advertisement -

Er Ólafur Ragnar ofalinn forréttindapési?

Mörgum á óvart hefur Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, hent sér í pólitískátök. Þar með hefur hann rofið griðin sem hann naut, stöðu sinnar vegna. Ólafur Ragnar gengur fram af hörku og af fullyrðingargleði.

Einn af þeim sem hér er nokkuð mikið vitnað til, Úlfar Hauksson, sem er stjórnmálafræðingur, vélfræðingur og skipstjórnramenntaður, skrifaði eftirfarandi:

„Ég hef nú ekki heyrt af neinum sem hefur áhyggjur af Ólafi. Hann hefur það gott og er á framfærslu skattgreiðenda út ævina. Og það ekki á neinum sultarlaunum.

Hins vegar hafa margir verið að rifja upp gjörðir, sagnir og skoðanir Ólafs í gegnum árin. Bara ósköp eðlileg upprifjun úr því Ólafur ákvað að vera eitt af aðal andlitum neiista. Sem ungur blaðamaður var Ólafur á móti EFTA-aðild. Hann var á móti NATÓ aðild. Og hann var á móti EES. Allt hreinar og klárar staðreyndir.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Ólafur var auðvita klappstýra og kampavínsskenkjari banksteranna

Ólafur fór mikinn í andstöðu sinni og lét stór orð falla um að allt færi hér til helvítis… margsinnis … ef við svo mikið sem kæmum nálægt þessum samtökum. Og Ólafur ætlaði að koma á fót lakkrísverksmiðju í samsarfi við vini sína og alræðisöflin í Kína. Hann hélt því fram að þessi verksmiðja gæti komið í staðinn fyrir EES. Spauglaust.

Skoðanir Ólafs hafa elst afar illa og ekkert af hans Armageddon spádómum hefur ræst. Þvert á móti. Og nú hefur Ólafur dustað rykið af gömlu ræðunum… sama Armageddon… og allt íhaldið með stjörnur í augunum yfir ræðum gamla Kommans!

Já og Ólafur var auðvita klappstýra og kampavínsskenkjari banksteranna sem settu Ísland á hausinn. Þetta er bara saga Ólafs. Ólafur er ekki elliær…. en spilltur er hann. Ofalinn forréttindapési.“

Úr þingræðu Ólafs Ragnars:

„Það getur nefnilega vel verið að þessi lakkrísverksmiðja í Kína eigi eftir að gefa Íslendingum miklu meiri hagnað en EES-ævintýri hæstv. utanrrh. Og þegar uppi verður staðið snemma á 21. öldinni muni menn frekar hengja upp myndir af hv. þm. Árna Johnsen en hæstv. utanrrh. Jóni Baldvin Hannibalssyni því að hv. þm. Árni Johnsen hafi haft meira nef fyrir því hvar gróðavonina var að finna en hæstv. utanrrh. Það eru um það bil 1.000 millj. íbúar í Kína. Þeir geta borðað mikið af lakkrís. Íslendingar sem fengju sterka stöðu á þeim markaði geta skilað tekjum og arði til þjóðarbúsins í nánast himinháum stærðum.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: