Fréttir

Er sjávarútvegsráðherra á Íslandi?

By Miðjan

April 29, 2026

Hér er hægt að lesa fréttina hér að ofan.

Sjávarútvegur: Vigfús Ásbjörnsson strandveiðisjómaður skrifar:

„Er einhver sjávarútvegsráðherra á Íslandi? Hanna Katrín hefur ekkert um málið að segja og fer huldu höfði eins og hún hefur reyndar gert í allan vetur. Hvað ætlar Viðreisn að bjóða uppá í næstu sveitarstjórnarkostningum? Sjálfsagt það sama og í landsmálunum!

Hunsa strandveiðikerfið, áframhaldandi ísprósentu og vigtarsvindl. Að halda áfram að leyfa útgerðum að hlunnfara sjómenn með uppgjörum á undirverðum. Áframhaldandi milliverðlagningu á lönduðum sjávarafla og þar með hlunnfara sveitarfélögin og þjóðfélagið á réttmætum skattstofnum. Búa til kvótakerfi í lagareldi og leyfa útgerðum að brjóta lög um kvótaþakið. Allt í boði sjávarútvegsráðherra í dag og verður sjálfsagt áherslur Viðreisnar í sveitarstjórnarmálum. Það felst engin viðreisn í Viðreisn, Hanna Katrin Friðriksson og Kristrún Frostadóttir.“