- Advertisement -

ESB-barátta Moggans heldur áfram

Sem ætla mátti fer talsvert fyrir baráttu Moggans gegn aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Blysberar dagsins eru Andrés Magnússon, Hjörtur J. Guðmundsson og Birgir Ármannsson.

Hér er vitnað lítillega í greinar þeirra baráttubræðra. Andrés er fyrstur:

„Fullyrðingar um að ljúka mætti enduruppteknum viðræðum á 12-24 mánuðum bera því vott um talsverða bjartsýni. Ómögulegt er að leggja raunhæft mat á tímann fyrr en samningsafstaða Íslands liggur fyrir og ljóst er hvaða viðræðuramma öll aðildarríkin samþykkja. En eins og ráðamenn í Brussel þreytast ekki á að minna á í samningum, þá er ekkert búið fyrr en allt er búið.“

Birgir er næstur:

Þú gætir haft áhuga á þessum

„Þá er rétt að nefna að lokum, að menn hafa verið afar ósammála um að hve miklu leyti hægt er að tala um framsal fullveldis í þessu sambandi. Sú deila virðist mér fyrst og fremst snúast um orða- og hugtakanotkun og mismunandi skilning á því hvað felist í fullveldishugtakinu. Með öðrum orðum er ekki deilt um inntak valdaframsalsins heldur frekar hvað eigi að kalla það. Er það efni í sérstaka umfjöllun og gefst mér vonandi kostur á að koma nánar inn á það á næstunni.“

Að lokum er það Hjörtur:

„Við Íslendingar eigum að sjálfsögðu að fá að halda kosningar um okkar innanlandsmál án pólitískra afskipta af hálfu Evrópusambandsins og annarra erlendra stjórnvalda. Slík afskipti eru vitanlega fullkomlega óviðunandi og fara þvert á rétt okkar sem fullvalda þjóðar. Hins vegar má Þorgerður þess utan endilega halda áfram að flytja inn ráðamenn frá ríkjum sambandsins fram að þjóðaratkvæðinu og gefa frekar í en hitt enda hafa slík pólitísk afskipti af okkar málum sjaldan fallið í sérlega góðan jarðveg hjá landsmönnum.“

Ekki mega þeir félagar ætla að þeir afli mikið með greinum skrifum sínum. Öruggt má telja að lesturinn sé ekki mikill og fólki, sem ætlar að kjósa með aðildarviðræðum, snýst varla hugur þó að þeir félagar skrifi og skrifi. Til þess er beita þeirra ekki nóg. Fáir, ef nokkrir munu bíta á.

Svo er það hin hliðin. Það er hvort þeir skrifi í vonum að þétta raðirnar. Að einangrunarsinnar missi ekki fólk úr sínu liði.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: