- Advertisement -

ESB eignast ekki auðlindirnar

Sveinn Andri Sveinsson lögmaður skrifaði:

„Þeir sem vilja ekki viðræður við ESB fullyrða blákalt að með aðild að ESB afsali Ísland sér auðlindum sínum.

Aldrei fylgir sögunni hvaða ESB-ríki hafi í raun misst eignarhald á auðlindum sínum við inngöngu.

Kannski vegna þess að svarið er: EKKERT ÞEIRRA.

Svíar eiga enn járngrýtið og skógana sína. Finnar eiga sína skóga og málma. Danir eiga olíu- og gaslindirnar í Norðursjó. Pólverjar eiga kolin og koparinn. Aðild að ESB er ekki afsal eða afhend­ingarsamningur á auðlindum.

Ríkin samþykkja hins vegar sameiginlegar reglur um nýtingu, umhverfisvernd og markaði. Í sjávarútvegi er stjórnun sameiginlegra aflaheimilda að stórum hluta sameiginleg og á það mun reyna í samningaviðræðum við ESB hvort veiðum á Íslandsmiðum verði áfram stjórnað af íslenzkum stjórnvöldum. En sameiginleg stefna aðildarríkja ESB um nýtingu og dreifingu auðlinda er ekki það sama og að ESB eignist auðlindina.

Myndin sýnir helstu náttúruauðlindir allra 27 aðildarríkjanna. Ekkert þeirra afsalaði þeim til Brussel.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: