Jón Gnarr:
„Virðulegi forseti. Kæru þingmenn. Ég hef reynt í lífinu að standa fyrir máli mínu og horfa framan í fólk. Ég þakka fyrir það tækifæri að fá að gera það hér. Þetta var erfið ákvörðun og ekki léttvæg. Hún var ekki tekin nema eftir langa og vandlega umhugsun. Eins og stjórnarskráin skyldar mig til að gera þá fylgi ég sannfæringu minni hér. — Takk fyrir.“