Íbúðamarkaðurinn: Baldur Jezorski skrifar:
Þegar ég byrjaði í fasteignasölu keypti venjulegt fólk íbúðir til að búa í, sjaldan til að leigja út. Ungir kaupendur, eldri kaupendur, fyrstu kaupendur og fjölskyldur sem voru að stækka. Það er enn meirihlutinn. En tölurnar segja okkur skýra og óhugnanlega sögu: hægt og bítandi er fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu að færast frá fólki yfir til fyrirtækja og leigufélaga. Og hvergi er það að gerast jafn hratt og í Reykjavík.
Ég ætla að gefa ykkur tölurnar og útskýra svo ástæður og mögulegar lausnir hér í þessum pistli.
Reykjavík: úr 61% í 34% á aðeins hálfri mannsævi.
Í dag eiga einstaklingar með aðeins eina íbúð um 61% af öllu íbúðarhúsnæði í Reykjavík. Það er hlutfall sem hefur verið að lækka stöðugt í 22 ár. Ef þróunin heldur áfram óbreytt og engin pólitísk inngrip eiga sér stað verður þetta hlutfall komið niður í 34% árið 2066. Á sama tíma fer hlutdeild lögaðila (ehf., hf., leigufélaga og fjárfestingafélaga) í íbúðafjölda Reykjavíkur úr 22% í dag upp í 43% árið 2066. Og þar af eiga lögaðilar með 10 íbúðir eða fleiri 32% samanborið við 17% í dag. Þetta er ekki spá. Þetta er einfaldlega framreikningur ef þróun síðustu 22 ár heldur áfram án ítaka stjórnvalda. Auðvelt er að breyta þessari þróun ef vilji er fyrir hendi.