Greinar

Fer Ásdís í formannsslag við Guðrúnu?

By Miðjan

September 08, 2026

DV segir að Ásdís Kristjánsdóttir undirbúi framboð til formanns Sjálfstæðisfflokksins, og fari þá gegn Guðrúnu Hafsteinsdóttur formanni flokksins.

Skoðum hluta þes sem DV segir:

„Árangurinn í kosningunum var prýðisgóður. Flokkurinn bætti við meirihluta sinn í Garðabæ og vann verulega á í Reykjavík og leiðir nú meirihlutasamstarf í borginni. Í Reykjanesbæ, Hveragerði og Mosfellsbæ komst flokkurinn aftur í meirihluta. Sömu sögu er að segja víða um land. Í Hafnarfirði tapaði flokkurinn en það var undantekning frá reglunni. Sigurvegari kosninganna var Sjálfstæðisflokkurinn og þar með formaður hans.

Einn stærsti sigurinn, ef ekki sá stærsti, vannst í Kópavogi þar sem Sjálfstæðisflokkurinn, undir forystu Ásdísar Kristjánsdóttur, náði hreinum meirihluta. Þetta gefur henni byr undir báða vængi og orðið á götunni er að metnaður hennar á sviði landsmálanna sé óendanlega mikill. Orðið á götunni er að með því að gera sig gildandi í andstöðu við fjármálafrumvarp ríkisstjórnarinnar sé greinilegt að Ásdís Kristjánsdóttir er stigin inn á svið landsmálanna vegna þess að fjárlagafrumvarpið hefur ekkert með Kópavogsbæ að gera. Greinilega er stefnan sett á landsmálin og formennskuna.

Sjálfstæðisflokkurinn í Kraganum, stærsta kjördæmi landsins, er höfuðlaus her eftir að bæði Bjarni Benediktsson og Þórdís Kolbrúna Reykfjörð Gylfadóttir eru horfin af vettvangi stjórnmálanna. Þeir sem eftir eru í efstu sætum listans þykja minni háttar spámenn og ekki foringjalega vaxnir. Orðið á götunni er að Ásdís, oddviti flokksins og bæjarstjóri í stærsta sveitarfélagi kjördæmisins, muni sækjast eftir því að leiða lista flokksins í kjördæminu í næstu þingkosningum. Fátt ætti að standa í vegi hennar, hvað þá ef hún verður þá nýr formaður Sjálfstæðisflokksins.“

Hér má sjá skrif DV.