Greinar

Fimmaurabrandari Moggans

By Miðjan

November 25, 2022

Leiðari Moggans snýr meðal annars að því hversu mikil nauðsyn er að launafólk fái sem minnst við gerð nýrra kjarasamninga. Að venju er leiðarahöfundur afundinn í garð Sólveigar Önnu Jónsdóttur og reynir enn aftur fyrir sér með fimmaurabrandara.

Nú vegna þess að Sólveig Anna er með fjölmenna samninganefnd með sér í samningaviðræðunum. Sólveig Anna stýrir fjölmennu félagi sem gætir hagsmuna síns fólks á mörgum og oft ólíkum stöðum.

Eins er Mogginn upptekinn við hagsmunagæslu eigenda sinna og mun berjast gegn samningum dragi þeir eitthvað úr ofurhagnaði þeirra.

Hér er orðrétt tilvitnun í leiðara Moggans:

„Enn fremur vek­ur áhyggj­ur að þeir sem sitja við samn­inga­borðið virðast nálg­ast samn­inga­gerðina án þess að horfa til þess hvernig kaup­mátt­ur hef­ur þró­ast á samn­ings­tím­an­um þrátt fyr­ir efna­hags­áfallið sem at­vinnu­lífið mátti þola. Þegar samið er hlýt­ur að verða að horfa bæði fram og aft­ur til að meta for­send­ur hækk­ana. Hækk­un kauptaxta sem étin yrði upp í verðbólgu næstu miss­era er minna en einskis virði fyr­ir launa­menn. Slíkt höfr­unga­hlaup kaup­gjalds og verðlags kom illa við al­menn­ing áður fyrr og kostaði tuga pró­senta verðbólgu. Samn­inga­menn verða að þekkja sög­una bet­ur en svo að þeir vilji end­ur­taka þann leik.“