Stjórnmál

„Fiskveiðistjórnarkerfið er handónýtt“

By Miðjan

April 21, 2026

Alþingi: Grétar Mar Jónsson, varaþingmaður og margreyndur skipstjóri, talaði um svindleiðir sem tíðkast við vigtun á afla:

„Ég ætla ekki að tala um sæhesta en ég ætla að tala um dagblaðsgrein sem birtist í dönskum fjölmiðli um síðustu helgi. Þar fékk fiskveiðistjórnarkerfið á Íslandi falleinkunn og Alþingi Íslendinga síðustu áratugi falleinkunn líka fyrir spillingu og alls konar gjörðir sem eru ekki þingi neinnar þjóðar sæmandi,“ sagði Grétar Mar Jónsson á Alþingi fyrr í dag.

„Við erum að tala hér um brottkast á fiski. Við erum að tala um ísprufusvindl. Við erum að tala um vigtarsvindl. Við erum að tala um hreinlega þjófnað á verðlagningu á fiski. Það hefur mjög slæm áhrif á íslenskan sjávarútveg að fá svona umfjöllun frá fjölmiðlum erlendis frá, ég tala nú ekki um virtum fjölmiðlum eins og í þessu tilfelli sem eru lesnir víða um heim. Þetta gefur í rauninni fiskveiðistjórnarkerfinu á Íslandi falleinkunn. Það er vandamálið að fiskveiðistjórnarkerfið okkar er handónýtt og þarf að skipta um, fara úr aflamarkskerfi yfir í sóknardagakerfi. Ég hef lagt það til að við hér á Alþingi myndum ákveða að hafa hér umræðu um fiskveiðistjórnarkerfið í sérstakri umræðu.