Greinar

Fór bankastjórinn í verkfall?

By Miðjan

February 03, 2024

„Hvernig er það aftur… fóru bankastjórnendur í harða kjarabaráttu á einhverjum tímapunkti með verkfallshótunum til að ná fram þessum ofurlaunum? Nú ef ekki hvenær var sú ákvörðun tekin og af hverjum að bankastjórnendur – sem vinna tiltölulega þægilega innivinnu og höndla með steindauða hluti alla daga og bera mjög svo takmarkaða ábyrgð – ættu að vera með ofurlaun? Við erum jú ekki að tala um náttúrulögmál heldur ákvörðun. Hver eru rökin fyrir þessum launum? Maður spyr sig…,“ skrifar Úlfar Hauksson.