- Advertisement -

„Forsendur kjarasamninga bresta í haust“

Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, skrifar:

„Ríkisstjórnin lofar því að hækka ekki skatta en tvöfaldar komugjöld á heilsugæsluna, býr til ný komugjöld og setur á stofn innviðafélag sem á að rukka vegfarendur hist og her til að fjármagna nauðsynlegar vegaframkvæmdir. Að hækka gjöld og skerða þjónustu er ígildi skattahækkana, og bæði ríki og sveitarfélög stunda þetta grimmt þessi misserin.

Gildandi kjarasamningar áttu ekki aðeins að fjalla um það sem launafólk fær í vasann, heldur líka allt sem fer úr honum. Stjórnvöld hafa ekki staðið undir sínum skuldbindingum og það, ásamt gróðasókn fyrirtækja, veldur því að forsendur kjarasamninga bresta í haust.

Við í stærsta stéttarfélagi landsins höfum ekkert annað tæki en að krefjast launa sem halda í við verð- og gjaldhækkanir fyrirtækja og stjórnvalda. Það er ekki endilega það besta í stöðunni sem nú er uppi, en er smám saman að verða það eina í stöðunni.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: