Indriði Þorláksson hefur skrifað merka grein. Hún byrjar svona:
„Fyrrverandi forseti landsins og svissneskur fyrrverandi dómari við EFTA dómstólinn hafa stillt sér upp í forystu gegn því að almenningur fái að kynna sér kosti og galla þess að ganga til fyllra samstarf við þær þjóðir Evrópu sem reynst hefur þjóðinni vel á síðustu áratugum. Hefur því verið haldið fram að þeir hafi bjargað þjóðinni frá glötun með aðkomu sinni að uppgjöri ICESAVE reikninga Landsbanka Íslands þótt fyrir löngu hafi verið sýnt fram á haldleysi slíkra staðhæfinga eins og Kristín Á Guðmundsdóttir bendir á í færslu á Facebook nýlega (Kristín um ICESAVE) og Jón Baldvin Hannibalsson fjallar um í grein á visir.is 14. ágúst.“
Hér er unnt að lesa greinina áfram.