Þorsteinn Sigurðsson og hið nýja rannsóknarskip, Þórunn Þórðardóttir.

Fréttir

Forstjóri Hafró vill hætta

By Miðjan

September 29, 2025

Atvinnuvegaráðherra hefur ákveðið að auglýsa laust til umsóknar embætti forstjóra Hafrannsóknastofnunar. Auglýsing þess efnis mun birtast á næstum vikum.

Núverandi forstjóri hefur gegnt embættinu frá 1. apríl 2021 og rennur skipunartími hans út 31. mars nk.

Atvinnuvegaráðuneytið hefur á undanförnum misserum unnið að mati á stöðu og framtíð Hafrannsóknastofnunar og hafrannsókna á Íslandi. Frumniðurstöður þeirrar athugunar benda til þess að þörf sé á að ráðast í heildstæða stefnumótunarvinnu til að efla stofnunina til frambúðar, bæði með tilliti til lagaumgjarðar, rekstrar og forgangsröðunar verkefna.Slíkum breytingum fylgja óhjákvæmilega margvíslegar breytingar á starfsemi og skipulagi stofnunarinnar. Í ljósi framangreinds er það mat ráðherra að rétt sé að auglýsa embættið laust til umsóknar.

Þetta er tekið beint af síðu atvinnuvegaráðuneytisins.