
„Ég er auðvitað vonsvikin yfir niðurstöðunni. Ekki bara af
því ég var að vona að við myndum taka þátt í alþjóðasamstarfi eins og aðrar
þroskaðar þjóðir, heldur af því þetta er liður í þróun sem ekki sér fyrir
endann á,“ skrifaði Sóley Tómasdóttir á Facebook.
„Framundan er enn meiri einstaklingshyggja, enn
meiri þjóðernishyggja, enn fleiri fánar og enn fleiri hvítir karlar með
uppblásin egó að passa uppá sérhagsmuni sína, klappaðir upp af pikkmíkonum.
Samvinna fer á lista með samkennd, jafnrétti og inngildingu yfir óæskilega
hluti í samfélagi fjarhægrisinnaðra einstaklinga.
Ég er skíthrædd. En mun samt aldrei gefast upp.
Einn góðan veðurdag munum við snúa þessari þróun við!“