- Advertisement -

FUNDU ÖRPLAST Í LUNGUM, LIFUR, MILTA OG NÝRUM MANNA

Vísindamennirnir segja, að örplastið berist í mannslíkamann með matvælum, sem við neytum, með vatni og innöndun.

Árni Gunnarsson skrifar:

Vísindamenn við ríkisháskólann í Arizona skýrðu frá því í gær, að við rannsóknir á 47 sýnum, sem tekin voru úr lungum manna, lifur, milta og nýrum, hafi fundist örplast í þeim öllum. Einnig fannst efnið Bisphenol, BPA, sem notað er við framleiðslu á plasti og er mönnum hættulegt.

Þetta þykja mjög alvarleg tíðindi, enda ekki fyrr staðfest með svo afgerandi hætti, að örplast berist inn í mannslíkamann, þótt grunur hafi leikið á því um nokkurt skeið. Með rannsóknum á fiski hér við land, hefur örplast fundist í holdi hans.

Allt örplastið er rakið til stærri plasteininga, sem eru víða í umhverfi okkar.

Á síðasta ári er talið, að í heiminum hafi verið framleidd 359 milljón tonn af plastefnum.

Vísindamennirnir segja, að örplastið berist í mannslíkamann með matvælum, sem við neytum, með vatni og innöndun.

Ekki liggur fyrir hver geta verið áhrif örplasts á líffæri og heilsu manna. Þessi niðurstaða vísindamannanna hlýtur að vera hvatning til okkar allra að draga sem mest við megum úr notkun hverskonar plastefni.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: