Orðið á götunni á dv.is segir í dag:
„Ný skoðanakönnun Maskínu fyrir Sýn sem byggir á svörum 963 svarenda – sem er reyndar á mörkunum þess að teljast marktækt – sýnir meðal annars að fylgi Miðflokksins heldur áfram að hrynja. Í janúar á þessu ári mældist flokkurinn með 22,2 prósenta fylgi en er nú kominn í 13,4 prósent og fer lækkandi með hverri könnun sem gerð er. Í janúar mældist Miðflokkurinn mun stærri en Sjálfstæðisflokkurinn. Nú hefur orðið alger viðsnúningur milli þessara hægri flokka þegar fylgi Sjálfstæðisflokksins ratar loks heim frá Miðflokki.
Orðið á götunni er að enginn þurfi að vera undrandi á því að fylgi Miðflokksins hrynji. Það er ekki bara öfgafullur og óaðlaðandi málflutningur flokksins sem veldur heldur einnig sú staðreynd að svo virðist sem aðrir flokkar geti ekki hugsað sér að vinna með Miðflokki í meirihlutasamstarfi þótt tækifæri gefist til þess. Ekki einu sinni Sjálfstæðisflokkurinn – og hver annar ætti þá að vilja samstarf við Miðflokkinn? Kjósendur átta sig á því að tilgangslaust er að ljá Miðflokki stuðning því hann mun hvergi komast til áhrifa og valda.“