Greinar

Segist ganga stolt frá borði

By Miðjan

September 15, 2025

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir borgarfulltrúi Viðreisnar æltar að hætta sem borgarfulltrúi við kosningarnar sem verða í vor. Hún skrifaði:

„8 ár er nægur tími – nú er komin tími á breytingar hjá mér.

Ég hef ákveðið að bjóða ekki fram krafta mína í komandi borgarstjórnarkosningum. Ég hef mikla löngun til að takast aftur á við spennandi verkefni í atvinnulífinu og tel að rétti tíminn til þess sé eftir sveitarstjórnarkosningar næsta vor, eftir að hafa þá starfað sem borgarfulltrúi í 8 ár.

Ég er afskaplega stolt af starfi mínu sem oddviti Viðreisnar í borginni og verkefnin sem við höfum tekist á við í samstarfi við frábært fólk úr öllum flokkum hafa verið skemmtileg, krefjandi og gefandi.

Ég hef alltaf lifað eftir þeirri hugsjón að það sé hollt að breyta til á 8-10 ára fresti og vera tilbúin til að takast á við nýjar áskoranir. Það heldur manni á tánum, gefur nýja sýn og opnar ný tækifæri. Ég skil sátt við borgarstjórn og afskaplega stolt af þeim verkum sem við í Viðreisn höfum komið áfram til hagsbóta fyrir borgarbúa.

Það er rétt að tilkynna þessa ákvörðun núna á þessum tímapunkti til þess að félagar mínir í Viðreisn geti hafið undirbúning að því að móta nýjan lista með nýju fólki í tæka tíð fyrir kosningarnar. Ég mun áfram vera til aðstoðar eins og þörf er á.

Þegar ég lít yfir undanfarin ár þá er margt sem hefur tekist vel og ýmislegt sem ég hefði viljað gera meira af.

Á þessum árum hef ég fengið að bera ábyrgð á fjölmörgum mikilvægum verkefnum fyrir borgina:

-Verið formaður borgarráðs í fjögur ár og starfandi borgarstjóri þegar þörf var á.

-Verið forseti borgarstjórnar í þrjú ár.

-Staðið að tímamóta verkefnum s.s. samgöngusáttmála, fjármálastefnu borgarinnar, fjármálalegum mælikvörðum, stafrænni þróun borgarinnar, einfaldara kerfi og viðhaldsátaki svo eitthvað sé nefnt.

-Staðið að uppbyggingu nýrra hverfa, innleiðingu nýrrar húsnæðisáætlunar og fjölbreytra verkefna í húsnæðismálum s.s. fyrir fyrstu kaupendur og grænt húsnæði.

-Staðið að gjörbreyttum samskiptum borgarinnar og atvinnulífsins, svo traust og samstarf byggðist upp. Þar eru verkefnin næg og afar mikilvægt að hlúa að samkeppnishæfni borgarinnar til langrar framtíðar.

-Stýrt og borið ábyrgð á Atvinnustefnu borgarinnar, samskiptum og verkefnum sem unnin voru með hagaðilum atvinnulífsins í borginni.

-Stýrt og borið ábyrgð á samstarfi ferðaþjónustu í borginni við hagaðila s.s með því að stýra Ferðamálastefnu borgarinnar, stofna Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins og veita henni forystu fyrstu árin, setið í verkefnastjórn Taste of Iceland og tekið að mér stjórnarformennsku í Meet In Reykjavík ásamt því að stýra vinnu við innleiðingu nýrra þolmarka og móttöku skemmtiferðaskipa í höfnum borgarinnar.

-Setið í stjórn Faxaflóahafna í sjö ár og þar af sem formaður í þrjú ár, kom þar að miklu breytingaferli, nýrri stefnu og þróun Faxaflóahafna.

-Stýrt og borið ábyrgð á gerð nýrrar eigandastefnu borgarinnar og innleitt góða stjórnarhætti í fyrirtækjum, ásamt því að veita fyrstu tilnefningarnefnd borgarinnar forystu í þrjú ár.

-Unnið að fjölgun leikskóla, uppbyggingu nýrra hverfa, ókeypis skólagögnum fyrir börn og hækkun frístundastyrkja.

-Setið í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga í fjögur ár og tekið að mér mörg verkefni fyrir sambandið s.s. setu í stjórn framkvæmdasjóðs ferðamála, í stýrihóp um landsáætlun skógræktar, setu í ferðamálaráði og í útflutningsráði ofl.

Þetta eru aðeins nokkur dæmi. Listinn er langur og engan vegin tæmandi og allt höfum við gert þetta saman sem liðsheild.

Hvað vildi ég gera meira af.

Ég er stundum spurð hvað ég hefði viljað gera meira af. Ég hef ekkert legið á skoðunum mínum hvað það varðar. Þar er helst að telja upp verkefni sem snúa að rekstri, fjármálum og stjórnun borgarinnar. Ég hefði viljað sjá meiri framþróun í ábyrgari fjármálum og sjálfbærum rekstri A hluta, einfaldari umgjörð um eignir borgarinnar og minni pólitík í stjórnum innviðafyrirtækja. Ég hefði líka viljað ganga lengra í því að losa borgina undan rekstri sem hún þarf ekki að sinna, s.s. eins og rekstri malbikunarstöðvarinnar. Þetta verða áskoranir fyrir næstu forystu að takast á við.

Ég er stolt af því að Viðreisn í Reykjavík hefur undir minni forystu unnið að mörgum góðum verkefnun og samkvæmt nýjustu könnunum nú þrefaldað fylgi sitt . Það er skýr vísbending um að frjálslynd hægri miðjustefna með áherslu á ábyrgð í fjármálum en framsækni í velferð og samfélagsmálum á erindi og hefur náð eyrum borgarbúa.

Ég tek þessa ákvörðun nú með góðum fyrirvara og tilkynni hana nú fyrir landsþing flokksins svo að Viðreisn geti hafið undirbúning af fullum krafti fyrir kosningarnar á næsta ári. Ég hef trú á að ný forysta muni leiða flokkinn áfram af krafti, það er sannarlega þörf fyrir Viðreisn í borgarstjórn.

Ég er óendanlega þakklát að hafa verið treyst fyrir því að vera oddviti Viðreisnar í Reykjavík í átta ár.

Nú tekur nýtt fólk við – og framtíðin er björt.