Stjórnmál:
Kratinn.is:
Sjálfstæðisflokkurinn, sem á tyllidögum reynir að krýna sjálfan sig flokk hófsemi og hagræðingar, hefur fundið nýja leið til að fjölga verkefnum hins opinbera. Guðlaugur Þór Þórðarson, ráðherra til margra ára, nýtti nýverið gervigreind til að láta gera fyrir sig 320 spurningar vegna fjárlaga í tíu minnisblöðum sem telja alls 40 blaðsíður. Í stað þess að vilja báknið burt ákvað Gervigreindar-Gulli að gefa því að borða. Margréttað.
Ljóst er að það þyrfti her ríkisstarfsmanna í marga daga til að svara fyrirspurnunum. Þeir gætu verið að sinna raunverulegum störfum sem gerðu samfélaginu gagn.
Gervigreindarbragurinn á spurningunum sem Guðlaugur skilaði inn er svo yfirþyrmandi að enginn vafi er á því að þær eru fengnar þaðan. Því þótti Kratanum tilhlýðilegt að láta gervigreind greina gervigreindareinkennin og velja það sem henni fannst gervigreindareinkennandi við þennan leikþátt ný-Píratans Guðlaugs Þórs.
Framleiða spurningalista til að setja sand í tannhjól þings
Samkvæmt svari gervigreindar við eigin verkum birtast sömu lokafyrirmæli um stöðu ársins 2025, breytingar 2026 og áform 2027 55 sinnum í skjalinu sem Guðlaugur Þór lagði fram. Beiðnir skarast ítrekað og staðlaðir viðaukar eru hengdir aftan við spurningar sem þegar tilgreina árin.
Á blaðsíðu tvö í skjalinu er spurt um SOF Odin eða SOF Óðinn, skipulag og heimildir starfseminnar. Þar stendur líka: „Greinið sérstaklega á milli heitis starfsemi eða einingar og heitis bátsins Óðins.“ Fjórum liðum síðar er aftur spurt um heiti starfsemi og starfs- eða tignarheiti hjá Gæslunni, hver samþykkti þau og hvenær.
Mönnun sérsveitar er svo kölluð fram í mismunandi útfærslum í liðum 6, 22 og 55. Á öðrum stað er óskað eftir skiladegi ársreiknings hvers ríkisaðila, fyrir hvert ár frá 2017 til 2025, og samanburði við skilafrest.
Með öðrum orðum: Gervigreind var einfaldlega látin framleiða spurningalista til að setja sand í tannhjól Alþingis og tefja framgang mála. Þetta var einfaldlega pólitísk tafaaðgerð, úr sömu leikbók og málþófið í veiðigjaldamálinu.
Nýju Píratarnir sem vita ekkert hvert þeir eru að fara
Guðlaugur Þór var ráðherra í mörg ár þegar Píratar spiluðu grimmt þann leik að leggja fram fyrirspurnir um allt og ekkert á þingi. Það fór mjög fyrir brjóstið á Sjálfstæðismönnum og Brynjar Níelsson, pirraðasti hermaðurinn í þeim sérhagsmunagæsluher, kvartaði ítrekað opinberlega yfir þessu framferði og óskaði meira að segja sérstaklega eftir kostnaði ráðuneyta við að svara Pírötum og hversu margar vinnustundir færu í það. Guðlaugur Þór var þá utanríkisráðherra og svaraði því til að ein fyrirspurn á fyrra löggjafaþingi hefði útheimt 130 vinnustundir og fjórar fyrirspurnir Pírata á þá yfirstandandi þingi hefðu tekið samtals 19 klukkustundir í að svara.
Nú eru Sjálfstæðismenn hinir nýju Píratar og Guðlaugur Þór, sem leggur fram Pírataspurningar á iðnaðarskala, er við stýrið á sjóræningjaskipinu. Í stað sverðs er hann vopnaður vitvél og notar hana miskunnarlaust til að búa til tilgangslausan öldugang. Minna fer fyrir því að hann viti hvert hann ætli að sigla fleyinu.
En það er svo sem ekkert nýtt.