Greinar

Glæpamönnum veittur aðgangur að hlaðborði íslenskrar manngæsku

By Miðjan

September 12, 2026

Bjarni Sigtryggsson skrifaði:

„Moggi er duglegur að fletta ofan af dugleysi fyrri ríkisstjórna. Hingað komu í skjóli þurfandi og landflótta fjölskyldna ósvífnir glæpamenn og var veittur aðgangur að hlaðborði íslenskrar manngæsku. Jafnvel eftir að þessi maður hafði hlotið dóm fékk hann hæli og opinbera framfærslu. Hann hélt áfram og ekkert bólaði á lögum um að stöðva hingaðkomna glæpamenn og vísa þeim til baka.

Ekkert, fyrr en núverandi dómsmálaráðherra tók af skarið. Vonandi verður samstaða á þingi um tiltekt hennar í þessum málaflokki og tiltekt stjórnarinnar í ríkisóráðsíunni. Það þarf nefnilega að halda áfram og það er af nógu að taka, sem fyrri stjórnir létu ógert.“