
Jóhann Þorvarðarson skrifar:
Fyrrverandi forseti lýðveldisins, sem oft á sínum ferli hafði sérstakt yndi af því að kynda undir átökum og rugling, hefur í þessum efnum teygt nef sitt svo langt út að sjálfur Gosi myndi blikna.
Það er merkilegt að fylgjast með umræðunni um Evrópusambandið á Íslandi. Eftir harðar deilur mætti ætla að rökin væru orðin fáguð og staðreyndirnar vel þekktar. Þess í stað líkist umræða neisinna leiksýningu þar sem Gosi er leikstjóri.
Í sögunni um Gosa fólst vandinn ekki aðeins í því að hann sagði ósatt. Hinn raunverulegi harmleikur var að hann fór smám saman að trúa eigin sögum. Nefið lengdist ekki vegna misskilnings eða mistaka heldur vegna þess að mörkin milli veruleikans og þægilegrar frásagnar urðu óskýrari.
Áróður andstæðinga aðildarviðræðna við Evrópusambandið hefur tekið á sig ýmsar Gosamyndir þar sem kapp er lagt á að rugla umræðuna frekar en að varpa ljósi á hana. Fyrrverandi forseti lýðveldisins, sem oft á sínum ferli hafði sérstakt yndi af því að kynda undir átökum og rugling, hefur í þessum efnum teygt nef sitt svo langt út að sjálfur Gosi myndi blikna.

Tveir verkalýðsforingjar hafa jafnframt snúið við blaðinu í afstöðu sinni til þess sem þeir töldu áður þjóna hagsmunum launafólks best, það er lægri vextir. Nýsköpunargarpur kýs að segja aðeins hálfa söguna og lætur ósagt um þann ávinning sem Evrópusambandið hefur fært íslensku nýsköpunarlífi í gegnum EES-samninginn. Sérhagsmunagæslumaðurinn heldur síðan svo fast í verðtrygginguna og sérhagsmunakrónuna að úreltum hagfræðikenningum er hiklaust haldið á lofti. Kreddutrú er sett í öndvegi og hagsaga landsins fótum troðin.
Allra nýjasta dæmið er þegar oddviti Bændasamtakanna fullyrti að ekki sé hægt að ná hagstæðum samningum við Evrópusambandið þrátt fyrir yfirlýsingar frá fulltrúum sambandsins um hið gagnstæða. Þar taka samtökin undir með einangrunarsinnum og fortíðarmönnum sem hafa lengi haldið því fram að samningaleiðin sé í raun tilgangslaus.
Bændasamtökin bera þessa afskræmingu sannleikans fram þrátt fyrir að aðalsamningamaður Finna í landbúnaðarmálum hafi nýlega einnig bent á að hægt sé að semja við Evrópusambandið ef menn vandi til verka.

JÞ: Við værum fátækari, ófrjálsari og verr á okkur komin.
Bændasamtökin kjósa frekar einangrun og varnarleysi gagnvart framtíðinni þó vitað sé að ekki er sjálfgefið að samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið lifi mörg ár enn. Nú þegar er farið að þrengja að samningnum eins og tollar á kísilmálminn bera glöggt vitni um. Þar færði EES samningurinn framleiðslunni á Grundartanga takmarkaða vörn.
Til að pakka kotungshætti samtakanna inn er síðan vitnað til orða manns frá Hrafnseyri í Arnarfirði sem var í blóma lífsins á þar síðustu öld. Samtökin gleyma því þó að sá kappi var alþjóðasinnaður þó hann væri frá afskekktu byggðarlagi á Vestfjörðum. Hann vissi að afdalamennska leiðir ekki til góðs og myndi örugglega segja já 29. ágúst vegna djúpstæðs skilnings á heimsmálum dagsins í dag eins og til forna.
Það er ekki víkingalegt að leggjast í kör eða leita leiðsagnar hjá mönnum sem hræðast morgundaginn en elska gærdaginn. Spyrjið bara Gísla á Uppsölum sem sá of seint takmarkanir eigin kotungshugsunar ólíkt manninum frá Hrafnseyrinni.
Spáið í hvernig staða Íslands væri ef landinu hefði ekki lánast að verða aðili að EES eins og Bændasamtökin börðust fyrir. Við værum fátækari, ófrjálsari og verr á okkur komin. Fjórfrelsi EES samningsins hefur nefnilega gefið íslensku þjóðinni afar mikið. Án hans má efast um að nýsköpunarkappinn hefði náð að lyfta Vestfjörðunum og Íslandi upp.
Samhljómur neisinna birtist síðan reglulega í spám um að áframhaldandi viðræður leiði Ísland lóðbeint til glötunar. Það eitt að setjast við samningaborð er stundum látið hljóma eins og þjóðargjaldþrot, fullveldisslit og innrás geimvera sé rétt handan við hornið. Maður bíður bara eftir næsta falska áróðri um að Brussel ætli að banna kleinur og íslensku lopapeysuna.
Gosi varð að dreng vegna þess að hann horfðist loks í augu við staðreyndirnar, sannleikann.
En hér er kjarni málsins: Ekki er verið að kjósa um aðild að Evrópusambandinu heldur hvort halda eigi áfram samningaviðræðum og afla ítarlegri upplýsinga. Það hlýtur að teljast óábyrg afstaða að óttast upplýsingar þegar óvissa er um framtíð EES samningsins. Það ábyrgðarleysi mun einnig bitna á bændum.
Sérkennilegra verður trúboðið þegar menn halda því fram að þjóðin eigi að hafna samningi sem enginn hefur séð, fordæma niðurstöðu sem enginn þekkir og stöðva ferli sem gæti varpað ljósi á bæði kosti og galla málsins. Slík afstaða minnir helst á mann sem neitar að opna bók af ótta við að komast að því hvernig sagan endar.
Það sem gerir Gosa að varanlegri táknmynd er nefnilega ekki lygin ein og sér heldur endurtekningin. Sama sagan er sögð aftur og aftur þar til hún hættir að hljóma eins og fullyrðing og fer að hljóma eins og staðreynd.
Ef Gosi tæki virkan þátt í umræðunni í dag myndi hann líklega halda stórfenglegan blaðamannafund þar sem hann útskýrði að besta leiðin til að komast að því hvað stæði í samningi væri að lesa ekki samninginn. Nefið myndi auðvitað lengjast á fundinum, en stuðningsmenn hans myndu strax útskýra það sem séríslenska samningatækni, algjöra snilld. Og fyrrverandi forsetinn myndi eflaust segja á alþjóðavettvangi: You ain’t seen nothing yet.
Í lýðræðisríki á umræðan ekki að snúast um að velja sér niðurstöðu og leita síðan að rökum sem styðja hana. Hún á að snúast um hið gagnstæða: að kynna sér staðreyndir og komast svo að niðurstöðu. Að vilja upplýsingar er ekki uppgjöf. Að vilja viðræður er ekki undirgefni. Að vilja sjá samning áður en afstaða er tekin er einfaldlega gáfulegt.
Í lok sögunnar varð Gosi ekki að alvöru dreng vegna þess að hann vann rifrildi. Hann varð að dreng vegna þess að hann horfðist loks í augu við staðreyndirnar, sannleikann.