Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi skrifaði:

„Núverandi formaður velferðarráðs hefur lengi verið fulltrúi í velferðarráði og hefur setið fundi þar sem málefni máltíðaþjónustunnar hafa verið til umræðu. Þá samþykkti fulltrúinn á velferðarráðsfundi 4. mars 2026 umræddan samning þar sem áætlaður kostnaður lá fyrir (þetta sést í fundargerð velferðarráðs frá 4. mars 2026 – lið 2 og fundargerð velferðarráðs frá 6. maí 2026 – lið 6). Þá var málið einnig tekið fyrir degi síðar á fundi borgarráðs þann 5. mars þar sem allir í borgarráði greiddu atkvæði með samningnum sem er til umfjöllunar, þ.m.t. núverandi formaður velferðarráðs og núverandi borgarstjóri. Einhverra hluta vegna er sá liður enn trúnaðarmerktur en ég leitaði staðfestingar á afgreiðslu til þess að vera alveg viss áður en ég færi fram á ritvöllinn því þessi vinna snýst um að vanda sig.
Þannig að borgarfulltrúinn sem sakar aðra um slæm vinnubrögð ætti kannski sjálf að fylgjast betur með því sem hún er að samþykkja. Fulltrúinn staðfesti þennan samning fullmeðvituð um stöðuna. Nú er borgarfulltrúinn að gagnrýna eitthvað sem hefur verið samþykkt af henni oftar en einu sinni (í velferðarráði og í borgarráði).
Það er sjálfsagt og eðlilegt að vera gagnrýninn en rétt skal vera rétt. Það getur verið mikið álag í þessu starfi en það er mikilvægt að fylgjast vel með og reyna að muna hvað maður hefur verið að samþykkja.“