Mynd: BBH Singapore / Unsplash

Fréttir

Grái herinn stefnir ríkinu

By Ritstjórn

November 22, 2019

Grái herinn, aðgerðarhópur innan Félags eldri borgara í Reykjavík, þingfestir á næstunni mál gegn ríkisvaldinu til að freista þess að fá margumtalaða skerðingu lífeyris almannatrygginga dæmda ólöglega. Sækjendur búa sig undir að málið fari upp í gegnum öll þrjú dómstig landsins, hver svo sem niðurstaðan verði og leitað verði í framhaldinu til Mannréttindadómstóls Evrópu ef nauðsyn krefji.

Sjá nánar hér:

Grái herinn skorar ríkið á hólm í réttarsölum

Grái herinn, aðgerðarhópur innan Félags eldri borgara í Reykjavík, þingfestir á næstunni mál gegn ríkisvaldinu til að freista þess að fá margumtalaða skerðingu lífeyris almannatrygginga dæmda ólöglega. Sækjendur búa sig undir að málið fari upp í gegnum öll þrjú dómstig landsins, hver svo sem niðurstaðan verði og leitað verði í framhaldinu til Mannréttindadómstóls Evrópu ef nauðsyn krefji.

Finnur Birgisson, arkitekt og talsmaður Gráa hersins, upplýsti þetta á fulltrúaráðsfundi Birtu lífeyrissjóðs í síðustu viku. Málflutningsstofa Reykjavíkur flytur málið fyrir hönd þeirra sem höfða það að frumkvæði Gráa hersins og útlit er fyrir að málareksturinn hefjist síðar á þessu ári.

Stofnaður hefur verið sérstakur málsóknarsjóður til að vera fjárhagslegur bakhjarl málaferlanna. Stofnendur eru 33 félög eldri borgara í öllum landshlutum og fyrirliggjandi eru loforð frá verkalýðsfélögum um að leggja 2,8 milljónir króna í sjóðinn.

Betur má ef duga skal því ætla má að málskostnaður hlaupi á tugum milljóna króna. Verkalýðshreyfingin lofar frekari stuðningi og gert er ráð fyrir söfnunarátaki þegar fram líða stundir og þörf krefur.

Finnur nefndi ýmis rök fyrir málatilbúnaði Gráa hersins og bar sömuleiðis íslenska lífeyriskerfið saman við erlend eftirlaunakerfi: